Leikkonan Blake Lively og leikarinn Justin Baldoni hafa leyst úr dómsmáli sem þau lögðu fram gegn hvort öðru eftir tökur á kvikmyndinni It Ends With Us árið 2024.Lögmenn Lively og Baldoni birtu sameiginlega yfirlýsingu sem felur í sér að málið verði ekki tekið frekar fyrir dómstólum, en meðferð málsins átti að hefjast 18. maí.Í yfirlýsingunni kemur fram að myndin sé uppspretta stolts fyrir öll þau sem unnu að því að gera hana. „Að vekja til vitundar og hafa áhrif á líf þeirra sem hafa orðið fyrir heimilisofbeldi – og allra þeirra sem hafa orðið fyrir ofbeldi – er markmið sem við styðjum að fullu.“Lögmennirnir viðurkenna að ferlið hafi leitt af sér áskoranir og viðurkenna að áhyggjur sem Lively tók fram hafi átt skilið áheyrn og að þau séu staðráðin í að tryggja að vinnustaðurinn sé laus vi