Árið 2025 var það hlýjasta hér á landi frá því að mælingar hófust. Hiti var yfir meðallagi í átta af tólf mánuðum ársins og í heildina tekið 1,1 gráðu yfir meðalhita á 30 ára viðmiðunartímabili, 1990 – 2020. Fleiri hitamet voru sett þetta ár. Þannig var maí í fyrra sá hlýjasti sem mælst hefur og hiti fór yfir 20 gráður tíu daga í röð. Hlýjast varð á Egilsstöðum, þar sem hitinn fór í 26,6 stig, hærra en nokkru sinni hafði mælst í maí hér á landi.Júlí var líka sérlega hlýr og jafnaði rúmlega 90 ára gamalt hitamet fyrir júlímánuð, í ágúst fór hitinn á Egilsstöðum hátt í 30 stig, eða nákvæmlega 29,8 stig, sem er mesti hiti sem mælst hefur á landinu í hátt í áttatíu ár og á aðfangadag fór hiti í 19,8 gráður á Seyðisfirði – hætta en nokkru sinni í desember. Og svona mætti áfram telja.Fjallað var