Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Sólmyrkvinn og „Taylor Swift-áhrifin“

Sólmyrkvinn í ágúst gæti skapað verðbólguskot á versta tíma. Þetta kemur fram í nýrri hagspá Landsbankans. Hann verður í miðri verðsöfnunarviku Hagstofunnar og eykur því líkurnar á því að forsenduákvæði kjarasamninga bresti.„Það þarf ekki mikið til að verðbólgan endi yfir 4,7%. Ef áhrifin af sólmyrkvanum verða þau að verðbólgan mælist eitthvað aðeins hærri þá gæti það verið nóg til þess að forsenduákvæðið virkist.“Hjalti Óskarsson, hagfræðingur í greiningardeild Landsbankans, ber þetta saman við svokölluð „Taylor Swift-áhrif“.„Taylor Swift er auðvitað rosalega vinsæl. Það var sérstaklega 2024 sem að það mældust veruleg áhrif þegar hún var að koma við í borgum og bæjum,“ segir Hjalti.„Hvort sem það er Taylor Swift eða sólmyrkvi þá bara getur það haft áhrif á hagkerfið.“
Sólmyrkvinn og „Taylor Swift-áhrifin“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta