Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hjartað togaði Kötlu aftur vestur

Katla vakti fyrst athygli aðeins 15 ára þegar hún bar sigur úr býtum í Músíktilraunum. Þá hefur hún einnig starfað með tveimur bræðrum sínum í hljómsveitinni Celebs.Hún ólst upp vestur á fjörðum, nánar tiltekið á Suðureyri við Súgandafjörð, og er nú flutt aftur heim í kyrrðina fyrir vestan eftir að hafa búið í Reykjavík síðustu ár.„Alveg síðan ég fór suður í nám hefur alltaf verið eitthvað í hjartanu sem kallar á mann, mann langar alltaf að vera fyrir vestan,“ segir Katla sem hefur hafið störf sem leikskólastjóri í leikskóla á Ísafirði en hún leggur stund á nám í leikskólakennarafræðum um þessar mundir.Katla ræddi tónlistina, lífið fyrir vestan og leikskólakennaranámið í Miðstöðinni.Þú getur séð viðtalið í spilaranum hér fyrir ofan.Miðstöðin er á dagskrá öll fimmtudagskvöld á RÚV.
Hjartað togaði Kötlu aftur vestur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta