Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Strandveiðin hafin

Það var líf og fjör í Sandgerðishöfn í morgun þegar fyrstu strandveiðibátarnir voru að koma til hafnar með afla dagsins. Strandveiðitímabilið stendur til loka ágústmánaðar en síðustu ár hefur kvótinn verið að klárast upp úr miðjum júlímánuði. Strandveiðimenn vonast þó til að veiðin endist lengur þetta árið með viðbótarkvóta síðar á tímabilinu í samræmi við frumvarp sem innviðaráðherra lagði fram á Alþingi í mars.Alls hafa verið gefin út 811 leyfi til strandveiða og 28 umsóknir eru enn í vinnslu. Til samanburðar bárust 888 umsóknir í fyrra. Vilhjálmur Ólafsson yfirhafnarvörður í Sandgerði segir mikil uppgrip fylgja strandveiðum.
Strandveiðin hafin

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta