Mannúðarástand á Gaza versnar dag frá degi þrátt fyrir að vopnahlé hafi staðið í hálft ár að nafninu til. Lítið sem ekkert af bílavarahlutum hefur verið flutt þangað síðan, sem bitnar á öllum bílaflotanum, líka sjúkrabílum. Rottur, flær og önnur meindýr dreifa einnig sjúkdómum meðal íbúa sem eru á vergangi og á flótta.Varahluti vantar ekki bara í hefðbundna bíla heldur einnig sjúkrabíla og aðra bíla almannavarna. Varað er við því að verði ekki bætt úr gæti farið svo að aðeins verði hægt að mæta á vettvang neyðar fótgangandi.Lífskjör íbúa hafa heldur ekki batnað. Óhreinsað skólp rennur um flóttamannabúðir og skapar kjöraðstæður fyrir hin ýmsu nagdýr.