Kjörbúðin í Bolungarvík lokar um miðjan mánuðinn og þá verður aðeins ein verslun eftir í bænum. Í viðtali við Bæjarins besta er haft eftir Vífli Ingvarssyni framkvæmdastjóra Kjörbúðarinnar að búðin hafi verið rekin með tapi í lengri tíma. Hluta starfsmanna hafi verið boðið annað starf hjá Nettó á Ísafirði.Á meðal bæjarbúa sem hafa tjáð sig um lokunina á Facebook er Nikólína Þorvaldsdóttir. Hún segir mikinn missi að Kjörbúðinni.„Það er náttúrlega alveg skelfilegt að þurfa að fara yfir í næsta bæjarfélag fyrir mjólk.“ TELUR STÆRRI VERSLUN GETA HALDIÐ SJÓ Í BÆNUM Nikólína nefnir að í Bolungarvík sé góð verslun sem heitir Bjarnabúð. Þegar fólk geri stórinnkaup fari það þó yfirleitt inn á Ísafjörð og í stórmarkaðina þar.Hún bendir á að íbúarnir séu um þúsund talsins og mikið um að vera í atv