Landskjörstjórn telur báðar tillögur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar að orðalagi spurningar í þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið skýrar, skiljanlegar og hlutlausar.Nefndin óskaði umsagnar landskjörstjórnar um tvær tillögur að spurningu þar sem svarmöguleikar eru já og nei: * Á Ísland að ganga til aðildarviðræðna við Evrópusambandið? * Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið? Bryndís Haraldsdóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, segir nefndina á síðasta snúningi um að skila utanríkismálanefnd sinni umsögn með nýrri tillögu að orðalagi.Landskjörstjórn gerði athugasemd við orðalag spurningarinnar samkvæmt þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðsluna. Samkvæmt henni var spurningin eftirfarandi:„Á að halda áfram við