Hópur fólks hratt af stað herferð í New York í Bandaríkjunum þar sem hvatt var til þess að Met Gala yrði sniðgenginn. Met Gala er árlegur viðburður sem er haldinn í Metropolitan-listasafninu og oft kallað stærsta kvöld tískuheimsins.Milljarðamæringurinn Jeff Bezos og eiginkona hans Lauren Sanchez eru fjárhagslegir bakhjarlar í ár og það hefur farið öfugt ofan í marga.Bezos er einn af ríkustu mönnum heims. Hann er stofnandi Amazon og var forstjóri þess til ársins 2021. Amazon var eitt fyrsta fyrirtækið í heiminum til að selja vörur á netinu.Fyrirtækið, og Bezos sjálfur, hefur verið gagnrýnt fyrir slæman aðbúnað starfsfólks. Vísun í það má finna á einu af veggspjöldunum sem hafa verið hengd upp í New York.Þar má sjá plastflösku með gulum vökva standa á rauðum dregli og fyrir neðan hana er sk