Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Brúin yfir Djúpafjörð boðin út um miðjan maí

Vegagerðin gerir ráð fyrir að síðasta brúin í framkvæmdum Vegagerðarinnar á sunnanverðum Vestfjörðum fari í útboð um miðjan maí. Nýlega var sagt frá því að brúin færi í útboð í lok apríl en síðasta haust hafði Vegagerðin talið að útboðið færi fram um áramótin.Tvær steyptar brýr yfir Djúpafjörð og Gufufjörð eru í vinnslu og þeim framkvæmdum á að ljúka um áramót. Þriðja og síðasta brúin á að vera 250 metra löng stálbogabrú yfir Djúpafjörð. Það er lokahnykkurinn í vegbótum á Vestfjarðavegi 60 um sunnanverða Vestfirði. Þegar þeim er lokið verður leiðin um hálftíma styttri og öll klædd bundu slitlagi. Vegagerðin gerir ráð fyrir verklokum 2028.Þegar framkvæmdum í Gufudalssveit lýkur verður Vestfjarðavegur 60 um sunnanverða Vestfirði styttri og klæddur bundnu slitlagi. Þá sleppa ökumenn við að ak
Brúin yfir Djúpafjörð boðin út um miðjan maí

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta