Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Daði Freyr hefur ekki fengið nóg

Tónlistarmaðurinn Daði Freyr gaf út sín fyrstu lög fyrir rétt tæpum 10 árum og á þessum tíma hefur ýmislegt gengið á hjá honum. Eftir sex ára dvöl í Berlín er Daði Freyr fluttur aftur heim til Íslands með sína nýjustu breiðskífu - Too Much Not Enough í farangrinum.Platan inniheldur 12 ný lög en markar jafnframt ákveðin tímamót á ferlinum þar sem Daði stígur út fyrir sinn hefðbundna ramma að vinna allt einn. Hann opnar stúdíódyrnar fyrir fjölda lagahöfunda og Daði Freyr er ánægður með útkomuna.Umfjöllunarefni plötunnar fjallar um að fara milliveginn í lífinu, fjölskylduna, ástina og föðurhlutverkið og að þora að sleppa tökunum.Daði Freyr mætti með plötu vikunnar á Rás 2 þess vikuna til Atla Más Steinarssonar og ræddi við hann ferilinn og nýjustu breiðskífuna Too Much Not Enough.
Daði Freyr hefur ekki fengið nóg

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta