Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Skotbardagar á jörðu niðri í Líbanon

Tveir ísraelskir hermenn særðust í skotbardaga í suðurhluta Líbanons í morgun þegar ísraelsk hersveit hitti fyrir vígamenn úr röðum Hezbollah-samtakanna.Bæði Ísraelsher og Hezbollah hafa haldið árásum áfram þrátt fyrir vopnahlé sem tók gildi 17. apríl. Ísraelsher gerði í morgun loftárásir á fjölda bæja í Líbanon og hefur staðfesta herinn að tveir hermenn hafi særst í skotbardaga. Flogið var með þá á spítala.Ísraelsher heldur einnig áfram að skipa íbúum líbanskra borga og bæja á brott. Meira en 1,2 milljónir eru á flótta í landi þar sem íbúar eru aðeins um 5,5 milljónir.Ísraelsher hefur lagt undir sig nokkuð stórt landsvæði í suðurhluta Líbanons og margir Líbanar óttast að því verði ekki skilað aftur á næstunni.Þá ýja ísraelsk stjórnvöld að því að árásir á Gaza hefjist aftur af fullum þunga
Skotbardagar á jörðu niðri í Líbanon

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta