Sigling skemmtiferðaskipsins MV Hondius hingað til lands síðar í mánuðinum er ekki áhyggjuefni. Þetta segir Magnús Gottfreðsson, prófessor í smitsjúkdómalækningum við læknadeild Háskóla Íslands. „Ég gef mér það að það verði brugðist við með viðeigandi hætti áður en það kemur til Íslands,“ segir hann.Þrír farþegar eru látnir úr veirusýkingu sem kom upp um borð. Heilbrigðisyfirvöld í Suður-Afríku hafa staðfest hanta-veirusmit í einum hinna látnu. Grunur er um að fimm til viðbótar hafi smitast af hanta-veiru. Veikindi fóru að gera vart við sig um borð þegar skipið var á leið frá Argentínu til Grænhöfðaeyja. Þar hefur það legið fyrir akkeri í um sólarhring. Skipið á að sigla hingað til lands síðar í mánuðinum.Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir að brugðist hafi verið skjótt við og að samstarf sé