Reykjavíkurborg býður 100 störf fyrir 17 ára ungmenni í sumar.Þetta kemur fram í svari borgarinnar við fyrirspurn fréttastofu.Störfin eru ætluð ungmennum fæddum árið 2009 og fyrr. Opnað hefur verið fyrir skráningu á biðlista fyrir sumarstörfin hér.Á vefsíðu borgarinnar kemur fram að leitað verði í biðlistann ef ekki tekst að manna störf með umsækjendum sem sóttu um innan umsóknarfrests.Í apríl á síðasta ári samþykkti borgarstjórn tillögu þess efnis að sköpuð yrðu 100 störf fyrir 17 ára ungmenni. Tillagan var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.RÚV / Ragnar Visage