Heiðar Ingi var gestur Huldu Geirsdóttur í þættinum Fyrst á fætur og sagði lífi sínu sem hann segir hafa verið rússíbana. Hann náði ungur botni í baráttu við fíkn og var í kjölfarið ranglega greindur með geðsjúkdóm sem hann tók samviskusamlega lyf við í áratugi. Hið rétta kom í ljós þegar lyfin voru hreinlega farin að skaða hann og hann reyndist ekki með umræddan sjúkdóm.Hann er grjótharður KA maður sem hefur lifað og hrærst í bókabransanum frá barnsaldri, en vinnur nú að því að hægja örlítið á og gefa sér tíma fyrir sjálfan sig og sína nánustu, en fjölskyldan tekst nú á við djúpa sorg í kjölfar missis.Hlusta má á áhugaverða sögu Heiðars Inga í heild sinni í spilaranum hér að ofan.