Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Níunda hvert barn í Danmörku getið með aðstoð

Börnum sem fæðast eftir einhvers konar frjósemismeðferð fer fjölgandi í Danmörku, samkvæmt nýjum tölum frá heilbrigðisyfirvöldum þar. Níunda hvert barn er getið með aðstoð.Í fyrra fæddust 6336 börn eftir einhvers konar frjósemismeðferð, það eru um það bil 11 prósent allra fæðinga í Danmörku það ár. Árið 2020 voru börnin 5410 eða um níu prósent allra fæðinga.Fyrir tveimur árum ákváðu stjórnvöld að niðurgreiða fleiri meðferðir sem skýrir aukninguna að einhverju leyti. Börnum sem fæðast eftir meðferð þar sem notast er við gjafaegg hefur fjölgað umtalsvert. Árið 2015 fæddust 73 börn eftir slíka meðferð en í fyrra voru þau 253.Það er sem sagt orðið nokkuð alengt að börn séu getin með aðstoð. En það var árið 1983 sem fyrsta barnið fæddist í Danmörku sem var svokallað glasabarn - sem þýðir einfal
Níunda hvert barn í Danmörku getið með aðstoð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta