Frá siðaskiptum hafa fjórar íslenskar konur gerst kaþólskar nunnur svo vitað sé. „Fleiri íslenskar stúlkur íhuguðu klausturlífið en höfðu ekki þá trúarlegu hugsjón eða köllun sem klausturvistin krefst,“ segir í endurminningum Sigurveigar Guðmundsdóttur sem hugsaði um að gerast nunna en hætti við vegna heilsubrests.Í þættinum Meiningu á Rás 1 fjallar Anna Gyða Sigurgísladóttir um Steinunni Björnsdóttur (systur Mary Hildu), Halldóru Marteinsdóttur (systur Jóhönnu af Krossi), Guðrúnu Unu Sigurveigu Gísladóttur (systur Maríu Stanislaus) og Svanlaugu Guðmundsdóttur (systur Clementiu yngri) en hún gekk síðust í kaþólskt klaustur. Anna Gyða ræddi við ættingja hennar þar sem í ljós kom að hún hafi verið mikill grallari sem lét fátt stoppa sig. GAMANSÖM OG GLETTIN Allar gerðust þessar fjórar kon