Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Þurfa ekki að beygja sig undir nýja harðneskjulega heimsmynd

Leiðtogar yfir 40 evrópskra ríkja og stofnana söfnuðust í dag saman í Jerevan, höfuðborg Armeníu, vegna fundar EPC-klúbbsins, óformlegs samráðsvettvangs Evrópuríkja. Meðal gesta er Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, sem er fyrsti þjóðarleiðtoginn utan Evrópu til að taka þátt í fundinum.Carney sagði að það væru ekki örlög Kanada og Evrópuríkja að beygja sig undir nýja heimsmynd þar sem harka og kröfur um hagsmuni réðu för. Hann sagði samkomuna í Jerevan vera til marks um betri leið sem mætti feta í alþjóðamálum og lagði áherslu á náin samskipti ríkja.Kaja Kallas, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, sagði að þótt lengi hefði verið rætt um fækkun bandarískra hermanna í Evrópu hefði tímasetning tilkynningar Donalds Trumps, forseta Bandaríkjanna, um brotthvarf 5.000 hermanna komið á óvart
Þurfa ekki að beygja sig undir nýja harðneskjulega heimsmynd

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta