Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Sautján íslenskir fulltrúar í stærstu netöryggisæfingu heims

Forstöðumaður CERT-IS segir Ísland standa nokkuð vel í netvörnum en þó megi alltaf gera betur. Hann segir fulltrúa Íslands hafa staðið sig vel þegar þeir tóku þátt í stærstu netöryggisæfingu heims á dögunum.Netöryggisæfingin Skjaldborg 2026 (e. Locked Shields) er haldin af netvarnarsetri Atlantshafsbandalagsins. Hana sótti fjöldi íslenskra sérfræðinga ásamt um 4,000 öðrum þátttakendum frá 41 ríki. Ísland var í teymi með Noregi og Atlantshafsbandalaginu en á meðan á æfingunni stendur keppast lið frá ólíkum löndum að því að leysa ýmiss konar verkefni á sviði netöryggis.„Ísland, Noregur og NATO voru fimmta stigahæsta liðið af sextán. Það fóru sautján sérfræðingar frá Íslandi sem voru þá bæði frá hinu opinbera, mikilvægum innviðum og einkafyrirtækjum í landinu,“ segir Magni Reynir Sigurðsson,
Sautján íslenskir fulltrúar í stærstu netöryggisæfingu heims

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta