Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fjórir drepnir í eldflaugaárás

Fjórir voru drepnir og átján særðust þegar Rússar skutu eldflaug að bænum Merefa suðvestur af Karkív í Úkraínu í morgun. Þessu greindi Oleg Synegubov héraðsstjóri frá í dag. Hann sagði að fórnarlömbin væru tveir karlmenn og tvær konur, á aldrinum 41 til 63 ára. Synegubov sagði að fjölbýlishús, fjórar verslanir og bifreiðaverkstæði hefðu skemmst í árásinni. Árásin í dag var á þorpið Merefa en í síðasta mánuði var ráðist á olíubirgðastöð í nágrenninu.EPA / SERGEY KOZLOV
Fjórir drepnir í eldflaugaárás

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta