Írönsk stjórnvöld ætla ekki að láta viðgangast að bandarísk herskip fylgi flutningaskipum í gegnum Hormússund. Herstjórn Írans lýsti því yfir í morgun að ráðist yrði á öll erlend herskip sem nálguðust Hormússund eða reyndu að komast þar í gegn. Þetta sögðu Íranar að ætti sérstaklega við um bandarísk herskip.Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagði í gær að herfloti Bandaríkjanna myndi tryggja siglingu þeirra skipa sem hafa orðið innlyksa á Persaflóa eftir að stríðið í Miðausturlöndum hófst. Um 900 flutningaskip eru á Persaflóa og eiga ekki greiða leið eftir að Íranar lögðu tundurdufl og hófu árásir á skip sem reyna að sigla í gegnum Hormússund. Bandaríkjamenn settu hafnbann á Íran.Flugskeyti var skotið að olíuflutningaskipi á Hormússundi í nótt. Smábátar réðust á flutningaskip skammt frá