Leitin að glötuðu vegglistaverki úr Tónabíó, sem hvarf undir sprunguviðgerðir fyrir fjölda ára, vakti töluverð viðbrögð í Facebook-hópnum Gamlar ljósmyndir. Sigurður Snorrason, eigandi Reykjavík Bruggfélags, birti ljósmynd af vegglistaverki í hópnum fyrir helgi.Á myndinni mátti þó aðeins sjá um helming verksins, þar sem Pepsi Max-sjálfsali hylur restina, og óskaði Sigurður því eftir ljósmynd af öllu vegglistaverkinu. Vegglistaverkið er nú fundið.Þó nokkrir tjáðu sig í athugasemdum við færslu Sigurðar. Sumir velta fyrir sér hvenær vegglistaverkið hafi verið málað á vegg Tónabíós og af hverjum. Þá er líka hneykslast yfir því að málað hafi verið yfir listaverkið.Það var síðan hún Sigrún Þóra Björnsdóttir, sem starfaði áður í Tónabíó, sem birti mynd af vegglistaverkinu í heild við færslu Sigur