Hermenn með fána Írans standa frammi fyrir veggmynd af æðstaklerknum Mojtaba Khamenei.EPA / ABEDIN TAHERKENAREHÞrír karlmenn hafa verið teknir af lífi í Íran. Mizan, fréttaveita íranska dómstólakerfisins, segir mennina hafa verið dæmda til dauða fyrir morð á tveimur lögreglumönnum meðan á umfangsmiklum mótmælum stóð snemma árs.Mótmælin hófust í höfuðborginni Teheran vegna hækkandi framfærslukostnaðar en urðu að hörðum andófsaðgerðum gegn klerkastjórninni um gervallt landið. Öryggissveitir ríkisins brutu mótmælin á bak aftur af mikilli hörku og vitað er að þúsundir týndu lífi.