Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Óformlegur fundur stjórnmálaklúbbs Evrópuleiðtoga hefst í dag

Leiðtogar frá yfir fjörutíu Evrópuríkjum, EPC-klúbbnum svokallaða, hittast í armensku höfuðborginni Jerevan í dag. Þetta er fyrsti fundur klúbbsins í Kákasus. Armenar hafa undanfarið, undir forsæti Nikols Pashinyan, varfærnislega viljað losna undan áhrifum Rússlands og auka tengsl við önnur ríki Evrópu.Fulltrúar allra ríkja Evrópusambandsins og leiðtogar þess verða viðstaddir fundinn auk leiðtoga 21 ríkis til viðbótar. Kanadíski forsætisráðherrann Mark Carney er sérstakur gestur fundarins þar sem til stendur að ræða öryggi Evrópu, stöðugleika og framtíðarhorfur.Carney er fyrsti leiðtogi ríkis utan Evrópu til að sækja þennan óformlega vettvang heim, sem komið hefur saman á hálfs árs fresti frá árinu 2022. Það var að undirlagi Emmanuels Macron Frakklandsforseta og hugsað sem viðbrögð við inn
Óformlegur fundur stjórnmálaklúbbs Evrópuleiðtoga hefst í dag

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta