Jean-Luc Mélenchon, leiðtogi vinstri flokksins La France Insoumise, gefur kost á sér í frönsku forsetakosningunum á næsta ári. Hann tilkynnti þetta í viðtali á sjónvarpsstöðinni TF1 í gær.Hann var í framboði 2012, 2017 og 2022 þegar hann varð þriðji á eftir Marine Le Pen, leiðtoga Þjóðfylkingarinnar og Emmanuel Macron forseta. Mélenchon hefur áratugum saman verið í fararbroddi vinstrimanna í Frakklandi og hefur gegnt fjölda ráðherraembætta.Macron getur samkvæmt stjórnarskránni ekki boðið sig fram þriðja sinni. Le Pen stendur í ströngu við að fá hnekkt banni við framboði vegna dóms sem hún hlaut fyrir að misnotkun á fjármunum úr sjóðum Evrópusambandsins.Takist það ekki verður formaðurinn Jordan Bardella frambjóðandi Þjóðfylkingarinnar sem nýtur nokkurrar hylli þrátt fyrir að hafa ekki náð a