Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Engan sakaði þegar skotflaug hæfði flutningaskip á Hormússundi

Flugskeyti var í nótt skotið að olíuflutningaskipi á Hormússundi um 78 sjómílur, rúma 144 kílómetra, undan strönd Sameinuðu arabísku furstadæmanna, skömmu eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti að herinn myndi síðar í dag hefja fylgdarsiglingar gegnum sundið. Breska siglingamálastofnunin greindi frá árásinni og sagði áhöfnina ómeidda. Stofnunin hvetur sjófarendur til varkárni meðan yfirvöld rannsaka árásina. Íranar hafa haldið Hormússundi lokuðu frá upphafi stríðsins og herskip Bandaríkjanna framfylgja hafnbanni á móti. Miðstjórn Bandaríkjahers hefur tilkynnt að fjölda herskipa og flugvéla ásamt fimmtán þúsund manna herliði sé ætlað að fylgja flutningaskipum gegnum Hormússund. Íransstjórn segir fyrirætlunina brot á vopnahlénu sem tók gildi snemma í apríl. Ríflega 900 flutningask
Engan sakaði þegar skotflaug hæfði flutningaskip á Hormússundi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta