Kristrún á Bjargi, björgunarskip Björgunarfélags Akraness, kom með fiskibát í togi til hafnar á Akranesi á tíunda tímanum í kvöld. Einn af liðsmönnum Björgunarsveitar Akraness um borð í Kristrúnu.Aðsend / Björgunarfélag AkranessBjörgunarskipið var kallað út um klukkan sex eftir að leki kom að vélarrúmi bátsins um þrettán sjómílur, eða rúma 24 kílómetra, vestur af Akranesi. Um klukkustund síðar var Kristrún komin að fiskibátnum. Lekinn var stöðvaður og bátnum komið í tog, að því er segir í tilkynningu Björgunarfélags Akraness. Þetta var fyrsta útkall Kristrúnar á Bjargi eftir að hún kom til heimhafnar og tókst að sögn mjög vel. Mikil ánægja er sögð vera með skipið.