Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Mikill hiti á fyrstu íslensku eldpiparhátíðinni

Áhugi á eldpipar hefur aukist á Íslandi síðustu ár og því tóku tvær vinkonur sig saman og bjuggu til fyrstu íslensku eldpiparhátíðina, Reykjavík Chilli Festival, sem haldin var í Gamla Bíói í dag. Það eru þær Þórey Hafliðadóttir og Kristín Jóna Þorsteinsdóttir sem standa að baki hátíðinni.„Mig langaði í rauninni bara að prófa þetta og síðan plataði ég hana Kristínu með mér í þessa vitleysu,“ segir Þórey.Á hátíðinni var að finna íslenskar eldpiparafurðir á borð við sultur, sósur og jafnvel ís, ásamt því að til sölu var pipar af ýmsum gerðum sem ræktaður er hérlendis. Þá var blásið til átkeppni sem var svo sannarlega eldraun, enda öttu keppendur kappi í áti sjóðheits pipars.
Mikill hiti á fyrstu íslensku eldpiparhátíðinni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta