Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Íbúar af um 30 þjóðernum búa í Mýrdalshreppi

Íbúum í Vík í Mýrdal fjölgar stöðugt en á sama tíma fjölgar þeim á staðnum sem eru af erlendum uppruna, en nú eru þeir orðnir um 60% af íbúum í sveitarfélaginu. Fólk af um 30 þjóðernum býr í Vík.Í Mýrdalshreppi búa á tólfta hundrað íbúar en í þorpinu sjálfu búa um þúsund manns. Atvinnulífið gengur meira og minna allt út á þjónustu við ferðamenn og það virðist ekkert lát vera á ferðamannastraumnum í Vík og næsta nágrenni.„Íbúafjöldinn hefur náttúrulega rúmlega tvöfaldast á 10 árum og það er mikið byggt af íbúðarhúsnæði. Auðvitað er þetta drifið áfram af miklum vexti í ferðaþjónustu og við erum að fá mikið af erlendum íbúum, sem margir eru farnir að setjast að hjá okkur, eignast börn, sem ganga hér í skóla. Við viljum bara hlúa vel að þessum íbúum eins og öllum öðrum,” segir Einar Freyr Elín
Íbúar af um 30 þjóðernum búa í Mýrdalshreppi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta