Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Farþegar létust eftir bráð veikindi í öndunarvegi – skipið á að sigla um Ísland í maí

Tveir farþegar skemmtiferðaskipsins MV Hondius eru látnir eftir bráð veikindi í öndunarvegi. Einn farþegi til viðbótar var fluttur á gjörgæsludeild í Jóhannesarborg í Suður-Afríku, þungt haldinn. Hann hefur greinst með Hantaveiru. Þetta hefur AFP-fréttaveitan eftir heilbrigðisráðuneyti Suður-Afríku. Hantaveira berst úr nagdýrum í mannfólk og getur valdið blæðandi hitasótt.Skipið var á siglingu frá Argentínu til Grænhöfðaeyja þegar veikindi fóru að gera vart við sig um borð. Hondius er reglulegur gestur í íslenskum höfnum. Það á að halda af stað í siglingu um norðurslóðir frá Keflavíkurhöfn síðar í mánuðinum. Gert er ráð fyrir að skipið staldri við á Snæfellsnesi, Vestfjörðum, í Grímsey og á Akureyri.Samkvæmt upplýsingum AFP hefur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, WHO, fengið upplýsingar um
Farþegar létust eftir bráð veikindi í öndunarvegi – skipið á að sigla um Ísland í maí

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta