Þar til nýlega var Thomas Whiteman, kallaður Tommy, skráður þjálfari skólaliðsins THESA Riders í Texas sem keppir í hafnarbolta. Hann er 46 ára, fyrrum atvinnumaður í bandarísku hafnarboltadeildinni. Hann er á skrá yfirvalda í Texas yfir kynferðisbrotamenn. Hann var dæmdur fyrir að eiga í samskiptum við börn í því skyni að lokka þau til kynferðislegra athafna og fyrir að senda þeim klámfengið efni. Metro skýrir frá þessu Lesa meira