Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Óska eftir upplýsingum um Háskólann á Bifröst

Ríkisendurskoðun hefur sent fyrirspurn á menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti um málefni Háskólans á Bifröst. „Við höfum sent ráðuneytinu fyrirspurn en það er engin úttekt hafin á þessu stigi,“ segir Guðmundur Björgvin Helgason ríkisendurskoðandi í samtali við fréttastofu.Talsvert hefur verið fjallað um mál Háskólans á Bifröst í fjölmiðlum síðustu mánuði.Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor skólans, sagði af sér í febrúar í kjölfar svokallaðs siðanefndarmáls þar sem þrír kennarar sættu skoðun siðanefndar fyrir akademísk skrif sín. Hluti starfsfólks hafði lýst yfir vantrausti á Margréti vegna þess hvernig staðið var að málinu.Þá hefur verið fjallað um verktakagreiðslur sem hluti kennara þáði um árabil ofan á föst laun og tekið var fyrir í fyrra. Hluti deilnanna sem skekið hafa skólann
Óska eftir upplýsingum um Háskólann á Bifröst

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta