Jasmín Guðrún Abú Libde er að ljúka MA-námi í foreldrafræðslu við Háskóla Íslands og er ein fárra hér á landi sem hefur sérhæft sig á þessu sviði. Hún nær jafnframt til tugþúsunda foreldra á samfélagsmiðlum, þar sem hún fjallar um uppeldi, skjánotkun, mörk, bræðisköst, tengsl og samviskubitið sem virðist fylgja foreldrahlutverkinu eins og óumbeðið fylgiskjal.