Formaður Málarameistarafélagsins telur stöðu greinarinnar góða eins og er en að blikur séu á lofti eftir sumarið. Formaður félags pípulagningameistara sagði í gær að óveðursský hrönnuðust upp í greininni sökum samdráttar á byggingamarkaði og félagsmenn væru þegar farnir að finna fyrir því.„Ég get nú ekki alveg tekið undir það alveg að fullu leyti, hann er mjög svartsýnn þarna í þessu viðtali,“ segir Kristján Aðalsteinsson formaður Málarameistarafélagsins.„En svo sannarlega eru blikur á lofti varðandi næsta haust.“Hann telur að tímabundinn samdráttur verði í nýbyggingum, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu, en viðhaldsmarkaður hafi þó stækkað mikið. Stór verkefni líkt og uppbygging nýja Landspítalans taki mikinn mannskap til sín.Formaður Félags pípulagningameistara sagði í fréttum í gær að mar