„Fólk áttar sig á því að það sem áunnist hefur er fljótt að glutrast niður ef við erum ekki í varðstöðu til að verja það áfram. Það eru mjög sterk öfl alltaf tilbúin til þess að reyna að kroppa í öll áunnin réttindi og það er sama í hverju það er fólgið. Ef verkalýðsfélögin eru ekki til þess að verja þetta, þá erum við fljót að fara á botninn aftur.“ Þetta segir Finnbjörn A. Hermannsson, forseti Alþýðusambands Íslands, spurður um viðbrögð við nýlegum ummælum Björns Brynjúlfs Björnssonar, framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs, um verkalýðshreyfinguna.Björn sagði í nýlegum þætti Þjóðmála að baráttudagur verkalýðsins væri tímaskekkja og að verkalýðsfélög væru úrelt.Finnbjörn segir að hann skilji afstöðu Björns og Viðskiptaráðs. Verkalýðshreyfingin hafi staðið sterk og varist ásókn fjármálaflanna. Þá