Færri komust að en vildu á tískusýningu útskriftarnema í fatahönnun við Listaháskóla Íslands í síðustu viku þar sem nemendur kynntu lokaverkefni sín.Efnisval nemenda er fjölbreytt í ár. Kristrún Rut H. Antonsdóttir sótti innblástur til nátttrölla í sinni hönnun og notast meðal annars við ull, fiskileður og steina. Stella Michiko Sigrún Delli Zuani lagði áherslu á náttúruleg efni. Í hennar hönnun koma meðal annars við sögu fjaðrir stokkandar og álftar.Almenningi gefst kostur á að kynna sér útskriftarverkefni BA-nema í fatahönnun á stórri útskriftarsýningu í Hafnarhúsi við Tryggvagötu í Reykjavík. Sýningin verður opnuð 9. maí.