Tíminn líður hratt á gervihnattaöld, söng Pálmi Gunnarsson í Grieg-höllinni í Björgvin þegar Ísland tók í fyrsta sinn þátt í Eurovision. Í dag eru liðin 40 ár síðan.Pálmi, Helga Möller og Eiríkur Hauksson mynduðu söngflokkinn Icy sem tók þátt fyrir Íslands hönd með laginu Gleðibankanum eftir Magnús Eiríksson.Mikill áhugi var á keppninni og í fréttum Ríkisútvarpsins á degi keppninnar var sýnt frá því að götur Reykjavíkur hefðu verið nánast tómar á meðan hún fór fram.Væntingar landsmanna voru miklar í aðdraganda keppninnar. Dagblaðið Vísir hélt því fram á degi hennar að sigurlíkur Gleðibankans væru „verulegar“. Lagið endaði hins vegar í sextánda sæti af tuttugu og hin belgíska Sandra Kim bar sigur úr býtum.Vonbrigði Íslendinga voru greinileg á síðum íslenskra dagblaða.„Ég er ekki frá því að