Ökumenn 65 ára og eldri þurfa að endurnýja ökuréttindin á eins til fimm ára fresti - og árlega eftir áttrætt. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir þingmaður Miðflokksins lagði í fyrravor fram frumvarp um að á þessu verði slakað. Frumvarpið náði ekki fram að ganga á síðasta þingi og var lagt aftur fram í haust.„Þetta er algjört réttlætismál fyrir eldri ökumenn því að Ísland er komið mjög aftarlega. Öll nágrannalönd okkar fara eiginlega bara eftir hæfni og þú þarft bara að endurnýja alltaf á 15 ára fresti. Miðað við lyktir þessa frumvarps þá fer fólk úr því að þurfa að endurnýja 18 sinnum niður í 4 skipti á 20 ára tímabili.“Frumvarpið hefur nú verið afgreitt úr umhverfis- og samgöngunefnd. Nefndin í heild, þingmenn allra flokka, leggur sameiginlega til að frumvarpið verði samþykkt með breytingu í t