Hann hefur farið með okkur niður á hafsbotn, að kjarna jarðar, inn í myrka frumskóga og upp í hæstu trjákrónur. Leitt okkur að náttúrunni í öllum sínum myndum. Frætt og skemmt í meira en 70 ár.Þetta er David Attenborough. Eins manns náttúruafl. SNIGILL, TRÉ, FÍFILL OG RÆKJA Attenborough hefur verið heiðraður á allan mögulegan hátt. Snigill, tré, könguló, risaeðla, fífill og rækja eru meðal þeirra tuga dýra og plantna sem hafa verið nefnd í höfuðið á honum. Fáir hafa haft jafnmikil áhrif á samtíma sinn og hann.Og í ár eru 100 ár frá fæðingu hans.David Attenborough fæddist 8. maí 1926 og ólst upp í starfsmannahúsi á lóð University College í Leicesterskíri á Englandi þar sem faðir hans var rektor. David var næstelstur þriggja bræðra.Sá eldri, Richard, var þekktur leikari sem á seinni tímum