Tveir aðgerðarsinnar, sem reyndu að sigla með hjálpargögn á Gaza-svæðið, koma fyrir ísraelskan dóm í dag. Þeir eru frá Spáni og Brasilíu og voru fluttir til Ísraels með valdi til yfirheyrslu.Aðgerðarsinnarnir voru hluti af stærri skipaflota sem reyndi að rjúfa hafnbann Ísraels og sigla með hjálpargögn til Gaza. Á þriðja tug skipa, með 175 aðgerðarsinnum innanborðs, var stöðvaður nálægt grísku eyjunni Krít á fimmtudag. Öllum var sleppt nema körlunum tveimur.Ísraelska utanríkisráðuneytið hefur haldið því fram að mennirnir séu grunaðir um tengsl við hryðjuverkasamtök.Spánn hefur fordæmt aðgerðir Ísraels og kallað þær ólöglegar og utanríkisráðherra Spánar hefur sagt atvikið setja enn meiri þrýsting á samskipti ríkjanna tveggja. Það hefur andað köldu milli Spánar og Ísraels frá innrás Ísraels á