Fremur hæg norðanátt verður ráðandi í dag með stöku éljum og hita í kringum frostmark á Norðaustur- og Austurlandi. Um landið vestanvert verður hitinn á bilinu 2-9 stig yfir daginn og bjart að mestu.Á morgun er spáð áframhaldandi norðanátt með éljum á norðanverðu landinu sem bætir í um kvöldið. Búist er við talsverðum vindi á austanverðu landinu. Útlit er fyrir að það muni kólna nokkuð.