Í lok nóvember í fyrra samþykkti embætti Skattsins að heimila eigendum fyrirtækisins Öldungs hf., sem er móðurfélag hjúkrunarheimilisins Sóltúns í Reykjavík að lækka hlutafé þess og greiða tæplega 1,2 milljarða króna út til hluthafanna. Eigendur fyrirtækja geta gert þetta ef fjárhags- og skuldastaða þess er það góð að fyrirtækið geti lækkað hlutafé sitt með útgreiðslu á peningum til hluthafa.Eigendur Öldungs eru þeir Arnar Þórisson og Þórir Kjartansson sem eiga 45 prósent hvor og Anna Birna Jensdóttir sem lengi var forstjóri Sóltúns. Þessi aðferð er stundum notuð til að taka peninga út úr fyrirtækjum án þess að greiða út arð. Tekið skal fram að þessi aðferð er fullkomlega lögleg og verður Skatturinn að samþykkja útgreiðsluna.Hjúkrunarheimilið Sóltún og rekstrarfélag þess, Öldungur hf., haf