Einn var handtekinn í hverfi 108 vegna líkamsárásar og annar í hverfi 104 vegna húsbrots og líkamsárásar. Sá þriðji var handtekinn í 101 vegna eignaspjalla og líkamsárásar og sá fjórði í sama hverfi en hann neitaði að gefa upp kennitölu og gisti í fangaklefa. Frá því er greint í dagbók lögreglunnar.