Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Um það bil 40 þúsund mættu á teknótónlistarviðburð í óleyfi

Talið er að um 40 þúsund hafi mætt á teknótónlistarviðburð sem haldinn var í leyfisleysi í frönsku borginni Bourges í gærkvöld.Emmanuel Macron Frakklandsforseti. Ríkisstjórn hans boðar hert viðurlög við ólöglegum tónlistarviðburðum.EPA / AURELIEN MORISSARD / POOLBorgaryfirvöld litu svo á að stórhættulegt væri að halda viðburðinn enda haldinn á gömlu hernaðarsvæði þar sem óttast er að virkar sprengjur liggi grafnar. Skotfæri og sprengjur hafa fundist nærri vegi sem liggur gegnum svæðið að sögn yfirvalda.Um það bil sex hundruð lögreglumenn og tugir slökkviliðsmanna voru fengnir til að gæta öryggis og vera til reiðu kæmi eitthvað fyrir. Franska þingið hefur í hyggju að herða löggjöf um óskipulagða tónlistarviðburði þannig að forsvarsmanna gæti beðið fangavist og fésekt gesta.
Um það bil 40 þúsund mættu á teknótónlistarviðburð í óleyfi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta