Annir voru hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld og í nótt að því er segir í morgunskeyti.Talsverðar annir voru hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Mynd úr safni.RÚVErillinn virðist hafa verið mestur í miðborg og vesturhluta Reykjavíkur þar sem minnst fjórir voru handteknir vegna líkamsárása. Einn var handtekinn vegna hótana við samborgara sína í Árbæjarhverfi. Lögreglumenn höfðu eftirlit með afmælisveislu Hells Angels í Kópavogi.Einnig þurfti að hafa afskipti af nokkrum þjófum auk manns sem mistókst að stinga af hlaupandi eftir að hafa verið eltur á bíl um götur og ferðamanni sem vafraði út af hóteli á nærfötum einum saman, fann það ekki aftur og fékk því gistingu í fangaklefa. Sjö voru þar í morgun.