Í glæpasögum Önnu Rúnar Frímannsdóttur, Dauðaþögn og Eftirför, er aðalsöguhetjan lögfræðingurinn og síðar lögreglukonan Hrefna. Það neistar á milli hennar og fréttamannsins Sölva og ýmsir hafa innt Önnu Rún eftir því hvort þau nái ekki saman að lokum.