Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Einn lét lífið í umfangsmikilli drónaárás á Kherson

Einn lét lífið og fjórir særðust í drónaárás Rússlandshers á borgina Kherson í Úkraínu í nótt. Hernaðaryfirvöld í borginni greindu frá þessu í morgun.Björgunarlið að störfum eftir árás Rússa á borgina Lviv í október.EPA / MYKOLA TYSÁ sama tíma tilkynnti rússneska varnarmálaráðuneytið að á fjórða hundrað úkraínskum drónum hefði verið tortímt víðs vegar meðfram vesturlandamærum Rússlands. Ekki kemur fram hvort nokkur særðist.Bæði ríki hafa undanfarna mánuði aukið verulega notkun dróna við árásir. Þúsundir dróna eru sendar á báða bóga yfir landamærin í hverjum einasta mánuði. Rússar sendu metfjölda langdrægra dróna í áttina að Úkraínu í apríl, samkvæmt tölfræðigögnum frá úkraínska flughernum.
Einn lét lífið í umfangsmikilli drónaárás á Kherson

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta