Rúmlega tvær milljónir stigu í kvöld dans undir fullu tungli við seiðandi tónlist kólumbísku poppstjörnunnar Shakiru á Cobacabana-ströndinni við borgina Rio de Janeiro í Brasilíu. Ekkert kostaði inn á tónleikana sem eru hluti Las Mujeres Ya No Lloran-túrsins, eða Konur gráta ei meir, sem hófst einmitt í Rio á síðasta ári. Samnefnd plata kom út árið 2024.Shakira Isabel Mebarak Ripoll verður fimmtug snemma á næsta ári og hóf ferilinn árið 1990.Hún hefur nánast frá upphafi verið geysivinsæl í Brasilíu og nánast um gervalla Rómönsku Ameríku ásamt því sem hún á aðdáendur um víða veröld. Shakira hefur selt yfir 90 milljónir platna, fengið fern Grammy-verðlaun og fimmtán latnesk Grammy-verðlaun til viðbótar.Um það bil átta þúsund lögreglumenn gættu öryggis á tónleikunum, gestir þurftu að fara geg