Yfirkjörstjórn í Perú hefur ákveðið að hefja ítarlega endurskoðun á fyrri umferð forsetakosninga sem haldnar voru fyrir þremur vikum. Sérstakri nefnd innlendra og erlendra sérfræðinga hefur verið falið verkefnið. Þannig á að tryggja að talningin byggi á heiðarleika og gegnsæi svo kjósendur geti treyst niðurstöðunum þegar þær liggja fyrir.Miklar tafir hafa orðið á talningu kjörseðla enda hafa brigður verið bornar á gildi þúsunda þeirra. Þegar 97 prósent atkvæða hafa verið talin eru hægrimaðurinn Roberto Sanchez og íhaldsmaðurinn Rafael Lopez Aliaga enn nánast hnífjafnir með um tólf prósent hvor.Aðeins 27.500 atkvæði skilja þá að. Brýnt er að skera úr um hvor þeirra mætir hægrikonunni Keiko Fujimori í seinni umferðinni 7. júní. Hún hefur fengið rúm 17 af hundraði atkvæða. Hún er dóttir fyrru