Ættingjar írönsku andófskonunnar og friðarverðlaunahafans Narges Mohammadi krefjast þess að hún verði umsvifalaust flutt á gott sjúkrahús í höfuðborginni eftir að heilsu hennar hrakaði hratt og illa á föstudag.Norska Nóbelnefndin tekur undir kröfu fjölskyldu Mohammadi sem hlaut friðarverðlaunin 2023og var handtekin í desember fyrir andóf gegn stjórnvöldum.Mohammadi, sem er 54 ára, var flutt úr Zanjan-fangelsinu á lítið héraðssjúkrahús á föstudag og fjölskyldan telur allt of seint hafa verið brugðist við. Brýnt sé að læknar Mohammadi í Teheran taki við hjúkrun hennar.Hamidreza, bróðir Mohammadi sem er búsettur í Noregi, segir að blóðþrýstingur hennar hafi lækkað mjög hratt og ekki hafi tekist að koma honum í jafnvægi.Hann greindi frá því í apríl að systir hans hefði fundist meðvitunarlaus í